Fjölnishlaup Olís

21. júní 2021

Fjölnishlaup Olís er annað hlaupið í Gatorade Sumarhlaupa mótaröðinni.

Hlaupið fór fram á þjóðhátíðardaginn okkar 17. Júní, en hátt í 250 hlaupararar mættu til leiks.

Í 10 km hlaupinu sigraði Andrea Kolbeinsdóttir á tímanum 35:49, en í karlaflokki sigraði Arnar Pétursson á tímanum 31:35.

Í 5 km hlaupinu kom Ingibjörg Lára Sveinsdóttir fyrst í mark á tímanum 25:28.  Kristján Svanur Eymundsson var fyrstur karla á tímanum 17.01.

Í skemmtiskokkinu þá var Viktor Orri Fríðuson fljótastur allra og Aldís Tinna Traustadóttirvar fyrst kvenna sem kom í mark.

Samstarfsaðilar