Fjölnishlaup Olís

Fjölnishlaup Olís verður ræst í 36. sinn á Uppstigningardag 9. maí 2024 klukkan 11:00 frá Íþróttamiðstöðinni í Grafarvogi við Dalhús.

Dagar
0
Klst
00
Mín
00
Sek
00

      Tímasetning

      Uppstigningardaginn, 18. maí 2023, kl. 11:00

      Vegalengdir

      Boðið er uppá 10 km hlaup, 5 km hlaup og 1,4 km skemmtiskokk. Bæði 10 km og 5 km vegalengdirnar eru löglega mældar.

      Athugið að aðeins 10 km hlaup gildir til stiga í stigakeppni Gatorade sumarhlaupanna.

      Hlaupaleiðir

      10 km hlaupið verður ræst kl 11:00 frá göngustíg við Gagnveg sem er um 500 m norðaustan við Íþróttamiðstöðina í Dalhúsum - sjá kort. Hlaupstjóri fylgir hlaupurum að rásmarki 10 mín fyrir ræsingu.

      Hlaupið verður vestur fyrir fótboltavöllinn eftir Gagnvegi og um Fjallkonuveg og þaðan beygt niður göngustíg í átt að Grafarvogi og hann hlaupinn í vesturátt. Beygt verður inn í Bryggjuhverfið um Gullinbrú og þaðan verður hlaupið eftir göngustíg meðfram Elliðaárósum og yfir nýju brýrnar við Geirsnef. Rangsælis hringur er tekinn um Geirsnef yfir gömlu brýrnar og meðfram Sævarhöfða. Síðan verður sama leið hlaupin til baka. Endamark er við Íþróttamiðstöðina í Dalhúsum. Brautin er annáluð fyrir góðar bætingar enda mjög flöt ef frá er talinn upphafs- og lokakílómetri.

      5 km hlaupið verður ræst kl 11:10 frá endamarki. Hlaupaleiðin er sú sama og í 10 km hlaupinu fyrri helming hlaupsins, en í Bryggjuhverfi verður snúið við og hlaupið sömu leið til baka.

      Skemmtiskokkið verður ræst skömmu á eftir 5 km hlaupinu. Í skemmtiskokkinu verður 1,4 km hringur hlaupinn um Dalhús og yfir á Fjallkonuveg - sjá kort.

      Sjá mynd af korti

      Skráning og þátttökugjöld

      Þátttökugjöld eru 3.500 kr fyrir 10 km hlaup og 3.000 kr fyrir 5 km hlaup. Í skemmtiskokkið er þátttökugjaldið 1.500 kr fyrir 17 ára og eldri en 750kr fyrir 16 ára og yngri. Skráning fer fram á netskraning.is, hægt er að skrá sig þar til afhendingu gagna lýkur á hlaupadag.

      Afhending gagna verður frá kl. 18:00-20:00 þann 17. maí og á keppnisdag frá 09:30 til 10:15 í anddyri Grafarvogslaugar í Íþróttamiðstöðinni í Dalhúsum. Hlaupahaldari getur ekki tryggt ef að gögn eru sótt á hlaupadag að viðtakandi fái þau afhent í tíma fyrir ræsingu.

      Athugið að aldurstakmark í 10 km hlaupið er 12 ára.

      Verðlaun

      Verðlaunaafhending að hlaupi loknu.

      Farandbikarar fyrir 1. sæti karla og kvenna í 10 km hlaupum

      Keppendur í 10 fyrstu sætum karla, kvenna og í aldursflokkum í 10 km hlaupi öðlast stig í keppni um stigahæstu hlaupara í Gatorade sumarhlaupum

      Sigurvegarar í aldursflokkum fá sendar viðurkenningar.

      Aldursflokkar

      5 km og 10 km hlaup

      • 18 ára og yngri
      • 19-39 ára
      • 40-49 ára
      • 50-59 ára
      • 60 ára og eldri

      Skemmtiskokk

      • 10 ára og yngri
      • 11-12 ára
      • 13-14 ára
      • 15 ára og eldri

      Tímataka og úrslit

      Tímataka verður með flögum í öllum vegalengdum. 
      Úrslit verða birt á vef Gatorade sumarhlaupanna og timataka.net

      Drykkir

      Þátttakendur fá Gatorade í boði Ölgerðarinnar við 5 km og í endamarki.

      Skipuleggjendur

      Framkvæmd hlaupsins er í höndum frjálsíþróttadeildar Fjölnis en vefsíða deildarinnar er á fjolnir.is.

    Samstarfsaðilar