Sumarhlaupin 2019

15. mars 2019

Íþróttabandalag Reykjavíkur, frjálsíþróttadeildir Ármanns, Fjölnis og ÍR og Powerade standa saman að mótaröð hlaupa í sumar sem nefnist Powerade Sumarhlaupin. Mótaröðin var fyrst sett á laggirnar sumarið 2009 og er þetta því í ellefta sinn sem hún er haldin.

Powerade Sumarhlaupin 2019 eru:

VÍÐAVANGSHLAUP ÍR

Sumardaginn fyrsta 25. apríl, 5 km og 2,7 km skemmtiskokk

FJÖLNISHLAUPIÐ

Uppstigningardag 30. maí, 10 km, 5 km og 1,4 km skemmtiskokk

MIÐNÆTURHLAUP SUZUKI

20. júní, 21,1 km – 10 km – 5 km

ÁRMANNSHLAUPIÐ

3. júlí, 10 km

REYKJAVÍKURMARAÞON ÍSLANDSBANKA

24. ágúst, 42,2 km – 21,1 km – 10 km – 3 km skemmtiskokk – 600 m skemmtiskokk

Verðlaun eru í boði fyrir flest stig samanlagt í hlaupunum fimm í karla og kvennaflokki. Í öllum hlaupunum verða Powerade drykkjarstöðvar, verðlaun og aðgöngumiðar í sund.

Hlauparar við Powerade drykkjarstöð

Styrktaraðilar