Staðan í stigakeppninni að loknum tveimur hlaupum

19. maí 2018

Það er árangur í 10 km vegalengdinni í öllum hlaupunum sem gildir til stiga í stigakeppni Powerade Sumarhlaupanna nema í Víðavangshlaupi ÍR þar sem 5 km hlaup gildir til stiga. Tíu efstu hlauparar í hverju hlaupi fá stig fyrir árangur sinn og fá stigahæstu hlaupararnir verðlaun að loknu síðasta hlaupinu sem er Reykjavíkurmarþon Íslandsbanka.

Staðan í stigakeppninni að loknum tveimur hlaupum af fimm er þannig að Arnar Pétursson er með forystu í karlaflokki og Andrea Kolbeinsdóttir í kvennaflokki. Bæði Arnar og Andrea eru með fullt hús stiga þar sem þau sigruðu í fyrstu tveimur hlaupunum. Í öðru sæti í karlaflokki er Ingvar Hjartarson og í því þriðja Þórólfur Ingi Þórsson. Í kvennaflokki er Elín Edda Sigurðardóttir í öðru sæti og Helga Guðný Elíasdóttir í þriðja sæti.

Einnig er stigakeppni í sex aldursflokkum karla og kvenna og eru eftirfarandi hlauparar efstir:

18 ára og yngri 
Kjartan Óli Ágústsson og Telma Sól Sveinsdóttir
19-29 ára
Arnar Pétursson og Andrea Kolbeinsdóttir
30-39 ára
Vilhjálmur Þór SvanssonInga og Dögg Þorsteinsdóttir
40-49 ára
Þórólfur Ingi Þórsson og Hulda Guðný Kjartansdóttir
50-59 ára
Helgi Sigurðsson og Guðrún Harðardóttir
60 ára og eldri
Þorvaldur Kristjánsson og Ragna María Ragnarsdóttir

Smellið hér til að skoða nánar stöðuna í stigakeppni Powerade Sumarhlaupanna 2018.

Næsta hlaup Powerade Sumarhlaupanna 2018 og það þriðja af fimm á mótaröðinni er Miðnæturhlaup Suzuki sem fram fer í Laugardalnum fimmtudagskvöldið 21.júní. 

 Arnar Pétursson og Andrea Kolbeinsdóttir eru með forystu í stigakeppninni. 
(Ljósmynd  Baldvin Berndssen)

Samstarfsaðilar