Styttist í Reykjavíkurmaraþonið

18. júlí 2018

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fram fer laugardaginn 18.ágúst er síðasta Powerade Sumarhlaupið 2018. Hægt er að velja á milli fimm mismundandi vegalengda í Reykjavíkurmaraþoninu en aðeins 10 km hlaupið gildir til stiga á mótaröðinni.

Rafræn skráning í hlaupið verður opin til kl.13 fimmtudaginn 16.ágúst. Einnig verður hægt að skrá sig á skráningarhátíð hlaupsins í Laugardalshöll 16. og 17.ágúst en þá er þátttökugjald hærra og því allir hvattir til að forskrá sig.

Smelltu hér til að skrá þig í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2018.

Smelltu hér til að skoða lista yfir skráða þátttakendur.

Smelltu hér til að skoða stöðuna í stigakeppni Powerade Sumarhlaupanna 2018.

Styrktaraðilar