Powerade Sumarhlaupin 2019 hefjast á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 25.apríl kl.12, en þá fer Víðavangshlaup ÍR fram í 104. sinn. Bæði er boðið upp á hina hefðbundu 5 km hlaupaleið en einnig er hægt að taka þátt í 2,7 km skemmtiskokki sem er hugsað sem skemmtilegt fjölskylduhlaup.
Hlaupin verður einstök 5 km leið um hjarta miðbæjarins sem hefst í Tryggvagötu við Pósthússtræti og liggur meðal annars upp Hverfisgötuna, niður Laugaveginn og umhverfis Tjörnina. Skemmtiskokkið er ræst í Lækjargötunni fyrir framan MR og munu þátttakendur renna inn í hlaupaleið Víðavangshlaupsins og hlaupa síðustu 2,7 km leiðarinnar með þeim og inn í markið í Pósthússtræti.
Skráning í Víðavangshlaup ÍR er í fullum gangi á netskraning.is og verður opin til klukkan 11:00 á hlaupdag. Smelltu hér til að skrá þig. Einnig verður hægt að skrá sig í ÍR heimilinu miðvikudaginn 24.apríl klukkan 16:30 til 19:00 og á hlaupdag við rásmark frá klukkan 9:30 til 11:00.
Smelltu hér til að skoða nánari upplýsingar um Víðavangshlaup ÍR 2019.
Aðrar fréttir
Archive- 11. okt. 2022
Sigurvegarar í aldursflokkum
Sumarhlaup Gatorade samanstendur af fimm hlaupum, hlauparar sem taka þátt í 10 km (5 km í Víðavangshlaupi ÍR) safna stigum og hér að neðan má sjá sigurvegarana í hverjum aldursflokki.
- 11. okt. 2022
Sigþóra Brynja og Guðmundur Daði sigurvegarar í Gatorade Sumarhlaupa mótaröðinni 2022
Sigurvegarar í Sumarhlaupum Gatorade eru Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir og Guðmundur Daði Guðlaugsson.
- 24. mars 2022
Gatorade Sumarhlaupin 2022
Gatorade sumarhlaupin 2022 er stigakeppni úr 5 hlaupum, sem fer fram á tímabilinu 21. apríl - 20. ágúst.